NÁTTÚRULEG LEIÐ TIL JAFNVÆGIS OG ÞROSKA

Gerð jurtalyfja
Gerð náttúrulegra snyrtivara
Sjálfbær garðrækt

LESA MEIR

BOTANICAL SKINCARE FORMULATIONS

Búðu til náttúrulegar snyrtivörur með plöntukrafti

LESA MEIR

SEP-JÚN VIKULEGIR TÍMAR

Lifandi tímar í beinni útsendingu

LESA MEIR

MARIA HREFNA HJALMARSDOTTIR RINGDAL

GRASALÆKNIR OG PHYTO ARTISAN™
2 ÁRA NÁM

Þetta yfirgripsmikla tveggja ára nám var hannað og þróað af Maríu Hrefnu, sem byggir á áratugalangri rannsókn, verklegri reynslu og djúpri skuldbindingu við hefðbundna jurtavisku og nútímalega jurtanotkun.

Námið sameinar vísindalega þekkingu og verkleg verkefni, og kennir þér að safna, vinna og nota jurtir á ábyrgan hátt. Þú munt einnig læra að þróa eigin náttúrulegar snyrtivörur og jurtablöndur – byggðar á bæði aldagamalli þekkingu og nútímafræði.

Á meðan á náminu stendur færð þú leiðsögn frá reyndum grasalæknum í beinni útsendingu, og verður hluti af virku samfélagi sem styður við þína vegferð.

  • 80 námslotur. Grasalæknir og Phyto Artisan™
  • 430 klst. jurtalyf, jurtasnyrtivörur, holl næring og sjálfbærni
  • 300 klst. líffræði
  • 60 klst. viðskiptahæfni: markaðssetning og netverslun
  • 860 klst. sjálfsnám
  • 1650 klst. samtals

VISKA JURTANNA – HEILSUVEGFERÐ MEÐ TILGANGI

BREYTTU LÍFI ÞÍNU OG ANNARRA

Uppgötvaðu umbreytandi kraft jurtanna og taktu fyrsta skrefið í átt að heilbrigðari, meðvitaðri og náttúrulegri lífsstefnu. Með þessu námi ertu að velja sjálfa(n) þig – að hlúa að líkama, huga og tengslum við náttúruna.
Þegar þú skráir þig færðu aðgang að leiðsögn sérfræðinga, innblásnum netfundum og samfélagi sem styður við þína vegferð til bættrar líðanar og jafnvægis með náttúrulegum hætti.
Ferðalag að dýpri skilningi, sjálfsstyrk og aldagamalli visku sem býr innra með þér – byrjaðu að rækta heilsu sem byggir á tengingu, sjálfbærni og visku náttúrunnar.

INSTAGRAM

@lev.litt

Að læra af fornri visku,
og rækta framtíðina.

HEILSA OG VÖXTUR RÓTFEST Í NÁTTÚRUNNI

SKÓLI GRASAKONUNNAR

Skólinn okkar býður þér inn í heim þar sem forna viska plantnanna og forfeðra okkar lifir og dafnar.

Markmið okkar er að hjálpa þér að endurtengjast náttúrunni, styrkja líkama og huga, og finna dýpra jafnvægi innan frá.

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða ert reynslumikill grasalæknir, þá ertu hjartanlega velkomin(n) í samfélagið okkar – til að vaxa með okkur, rótfest, lauf eftir lauf.

NÁÐU Í ÓKEYPIS HANDBÓK

FRÁ FORVITNI TIL FJÖLÞÆTTAR FÆRNI – MEÐ ORÐUM NEMENDA SJÁLFRA

UMMÆLI NEMENDA

um skóla Grasakonunnar

Raddir nemenda okkar um námið og áhrif þess

Heiðar Örn Ólason

Fiskeldisfræðingur 
Íslandi

Jurtir heimsins og mannslíkaminn eru án efa með því flóknara sem fyrirfinnst á jarðarkúlunni okkar og að mastera þetta hvort tveggja saman á þessum 2 árum sem námið er verður að teljast ógerlegt að mínu mati.

Þess vegna skiptir miklu máli að námið sé rétt upp byggt og matreitt í nemendur á réttum hraða til þess að geta verið með sterka og góða grunnþekkingu á náminu að því loknu en eftir það tekur við áframhaldandi sjálfsnám vonandi til æfiloka.

Nú er ég kominn vel af stað í náminu þótt mikið sé eftir og gæti ekki verið sáttari með uppsetningu á náminu, þá er skólasíðan þannig sett upp að hún verður ómetanleg til uppflettingar um árabil. Það er hver grasalæknir með sínar aðferðir og er María Hrefna engin undantekning þar, ég vissi aðeins um hennar menntun og þekkingu áður en ég hóf námið og lít ég mikið upp til hennar sem mentor á þessu sviði.

Hún fer inn á ákveðin svið í grasalækningur sem held ég alls ekki allar grasalæknar stúdera eins og orkulækningar sem ég hef haft mikinn áhuga á lengi og var frábær viðbót sem ég vissi ekki af fyrir annars frábært nám að öllu leyti.

Ég get svo sannarlega mælt 100% með þessu skemmtilega og fræðandi námi fyrir alla sem finna löngun til að fara inn á þetta svið sem gefur manni ekki bara getu og vottun til að starfa sem grasalæknir heldur einnig verkfæri til þess að nýta jurtirnar til þess að bæta eigin heilsu og manns nánustu um ókomna tíð.

Frábært og virkilega skemmtilegt nám í alla staði og ég er stoltur að hafa slíkan viskubrunn sem María er sem mentor á þessu sviði.

Hafdís Sigríður Sverrisdóttir

Iðjuþjálfi
Íslandi

Ég er mjög ánægð með námið. Það er svo mikill fróðleikur, góðar útskýringar á öllu efninu. Mér finnst uppsetning á náminu góð. 

Hver kaflinn á eftir er svo fróðlegur og mér finnst námið meiri háttar. Ég er svo ánægð að hafa skellt mér í það. Góður kennari.

Kristín Ragna Höskuldsdóttir

Leikskólakennari
Íslandi

Ég er svo þakklátt fyrir að hafa séð auglýsingu frá Graskonan.is um nám í grasalækningum. Mig hafði lengi langað til þess að læra grasalækningar en þar sem það var ekki kennt á Íslandi kom ég mér ekki í að gera neitt í því.  Þess vegna var það alger himnasending fyrir mig að sjá að þetta nám var fjarnám.

Ég hef aldrei séð eftir því að skrá mig í námið, því strax á fyrstu dögunum sá ég að þetta var órtúlega flott upp sett og mér fannst ég alltaf vera að læra eitthvað nýtt. María kennarinn okkar er hafsjór af fróðleik og hefur ótrúlega rólega og góða nærveru. Vinnubrögð hennar eru algerlega til fyrirmyndar. 

Mér finnst alveg frábært að geta leitað til henna ref mig vantar svör/ráð varðandi námsefnið og verkefnin sem við erum að gera. Þó ég sé bara nýlega byrjuð í námiu hef ég þegar fengið meiri þekkingu á viðfangsefninu en ég hafði getað látið mig dreyma um. Mér finnst námið vera mjög hvetjandi og grasalækningar ótrúlega spennandi heimur til að skoða.

Eins er ég mjög ánægð með facebook síðuna þar sem við deilum verkefnum og leitum ráða hjá hvert öðrum, það er mjög hvetjandi og fallegur hópur sem er til í að styðja hvort annað og miðal af reynslu sinni, María er mjög góð að halda utan um hópin og leiða okkur áfram enda eru samskiptin þar alveg til fyrir myndar.

Takk fyrir mig, get ekki beðið með að læra Meira og kynnst grasalækningum og undraheimi hennar betur.

Erna Dagný Hjaltalín

Yfirumsjón þjónustusviðs hjá UNICEF á Íslandi
Íslandi

María Hrefna býr yfir djúpri þekkingu og ástríðu fyrir grasalækningum sem skín greinilega í gegn í náminu. Hún fylgist einstaklega vel með nemendum, veitir gott aðhald og aðlagar kennsluhætti eftir ólíkum þörfum. Námið sjálft er mjög vel uppsett og verkefnin skemmtileg og skapandi. Það er greinilegt að hún hefur lagt mikla vinnu og metnað í að byggja upp námið. María hefur ótrúlega hæfileika til að miðla þekkingu og búa til umhverfi sem hvetur til dýpri skilning og áhuga á efninu. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þetta nám og það er heiður að fá að læra af henni.

Hafðu það sem allra best elsku María og ég er mjög spennt að halda áfram í þessu frábæra námi.

Jóhanna Hilmarsdóttir

Blómaskreytir og garðyrkjufræðingur
Íslandi

Mjög áhugavert nám mikil þekking og góð framsetning. Ég er ótrúlega spennt fyrir framhaldinu því ég finn að allt grasalæknanámið mun opnast á 2 ára ferðalaginu, ég þarf ekki að muna og kunna allt strax, það kemur smá sama með endurtekningu og ástundun.

Heiðrún Hallgrímsdóttir

Matráður fyrir grunnskólann og FSN í Grundarfirði
Íslandi

Þegar ég fór í þetta nám renndi ég blint í sjóinn þar sem ég vissi í raun ekkert um plöntur. Ég verð að segja að þetta er ótrúlega skemmtilegt og krefjandi nám. Það heltekur mann að því leyti að allt sem ég er að læra hverju sinni verður svo áhugavert að þó stutt sé á liðið hefur hvarflað að mér að opna þörungarverksmiðju ( vorum að læra um þörunga) gerast sveppabóndi ( þegar við vorum að læra um sveppi) og síðast en ekki síst að rækta allar heimsins jurtir til lækninga. þetta er bara þriðji mánuðurinn en möguleikarnir virðast endalausir.

Ég er líka þakklát fyrir að við fáum að vinna þetta á okkar hraða þar sem við erum misjafnlega stödd í þekkingu okkar á plöntum. Námið er vel upp sett, ítarlegt og við náum að tengjast hvert öðru í tímunum og vinna saman verkefni og spjalla um námið sem gerir þetta ennþá betra. María er góður kennari og maður finnur að allar spurningar eiga rétt á sér og þeim samviskulega svarað.

Guðný Lára Gunnarsdóttir

Kennari (tónlist yoga), tónheilari, söng og leikkona
Íslandi

Skemmtilegt – Skapandi – Lærdómsrikt!

Ég tel mig mikið heppna að hafa rekið augun í auglýsingu um nám í grasalækningum hjá Grasakonunni, því námið er bæði skemmtilegt og um leið mjög fræðandi. Námsefnið er vel sett fram – það er skipulagt, fjölbreytt og um leið forvitnilegt. Hver kennslulota býður upp á spennandi blöndu af fræðilegri þekkingu og hagnýtingu, sem gerir efni hverrar viku skemmtilegt og um leið áhugahvetjandi

Einn af áberandi þáttum þessa náms er hvernig sköpunarkraftur og áhugasvið nemandans fær að blómstra í skemmtilegum verklegum sköpunarverkefnum og hugstormun. Æfingin skapar meistarann og reynslan kennir ráðið!

Vikulega hittast nemendur og kennari á Zoom fundi. Það er frábær vettvangur fyrir samskipti og umræður, sem gerir okkur nemendum kleift að haldast við efnið í léttri verkefnavinnu og spjalli en á sama tíma að styrkja og efla hópinn. Það er frábært að geta tengst öðru áhugafólki um jurtalækningar og um leið að geta deilt innsýn og reynslu um fræðin til hvors annars.

Grasakonan María Hrefna hefur hér skapað frábært nám með sínum einstöku hæfileikum og innsýn í fræðin. Nálgun hennar á námsefnið gefur skýrt til kynna hversu vel hefur verið vandað til verka og það er ljóst að mikil hugsun hefur farið í að skipuleggja hverja lotu svo myndist samfella náms sem byggt er ofan á í hverri viku. Ástríða hennar fyrir jurtalækningum er smitandi, ég er spennt í hverri viku að sjá hvað leynist í næstu kennslulotu!

Á heildina litið hefur nám mitt í grasalækningum hjá Grasakonunni farið fram úr væntingum mínum. Ég mæli eindregið með þessu námi fyrir alla sem hafa áhuga á að kafa ofan í heillandi heim jurtanna. Námsumhverfið, námsefnið, stuðningur kennara og samnemenda er klárlega peninganna virði ef þig hefur alltaf dreymt um að læra grasalækningar.

Pia Rumpf

Reiðkennari og tamningakona
Íslandi

Það var skyndiákvörðun að skrá mig á námskeiðið hjá þér og er ég fegin að hafa tekið þessa ákvörðun.

Mér finnst námskeiðið gríðarlega vel sett upp og það er stútfullt af fróðleik. Einnig finnst mér kennarinn metnaðarfullur og sér um að svara öllum spurningum eða fer í að kanna málið. Námskeiðið er fjölbreytilegt og hefur kveikt í mér að kynnast náttúrunni betur til að bæta lífsstílinn minn. Ég mæli eindregið með námskeiðinu. 

Inga Arnar

Sérhæfð í þjóðbúninganámskeiðshaldi fra 1995, sjúkraliði
Noregi

María Hrefna Hjálmarsdóttir Ringdal er einstakur kennari og jurtalæknir sem miðlar þekkingu sinni með mikilli ástríðu og alúð. Hún hefur djúpan skilning á lækningarmætti jurta og miðlar því á skýran, hvetjandi og aðgengilegan hátt. 

Með yfirgripsmikilli reynslu og einstökum kennsluháttum nær hún að gera flókin efni einföld og spennandi.

Það sem gerir Maríu Hrefnu að frábærum kennara er ekki bara djúp þekking hennar heldur líka hæfileikinn til að vekja áhuga og innblástur hjá nemendum hennar. Hún hvetur til gagnrýnnar hugsunar, gefur nemendum raunveruleg dæmi úr náttúrunni, náttúrulyfjum og skapar lærdómsríkt umhverfi þar sem allir finna sig velkomna.

Ég mæli eindregið með þessu námi fyrir þá sem hafa áhuga á núttúrinni og náttúrulækningum. 

Ég er ómetanlega þakklát fyrir að hafa fengið að koma inn í hópinn hennar Maríu Hrefnu og mun taka með mér dýrmæta þekkingu hennar sem er virðing fyrir náttúrunni og náttúrulækningum í framtíðinni. Hún er ómetanlegur leiðbeinandi fyrir mig sem vill dýpka skilning á jurtalækningum og náttúrulegri heilsu.

RÆTUR Í FORTÍÐ – NÆRING FYRIR FRAMTÍÐ

NÁTTÚRAN LEIÐIR LEIÐINA – TIL MEÐVITAÐRAR FRAMTÍÐAR

Taktu þátt í alþjóðlegum námsvettvangi þar sem plöntur kenna okkur að endurtengjast, vaxa og finna tilgang – með náttúruna sem leiðbeinanda..

Grunnur að heilsu með náttúrunni

Lærðu grunnfærni í hefðbundinni jurtanotkun og búðu til þitt eigið jurtasafn.
Þú munt þróa lækningate, útdrætti, smyrsl, hylki og jurtablöndur byggðar á aldagamalli visku og nútíma vísindum.

SKOÐA NÁMSKEIÐ

Gerð náttúrulegra snytivara

Lærðu að búa til eigin húðvörur með plöntum, olíum, jurtavatni og blómum.
Þróaðu þín eigin krem, húðumhirðu og hárvörur fyrir náttúrulega næringu og ljóma.

SKOÐA NÁMSKEIÐ

Endurnýjandi, vistvæn garðrækt

Lærðu að vinna með náttúrunni – ekki gegn henni.
Lærðu aðferðir til að styðja við líffræðilegan fjölbreytileika og heilbrigðan jarðveg á meðan þú rækta gagnlegar jurtir og matjurtir.

SKOÐA NÁMSKEIÐ

Helgisiðir og andleg tenging við jurtir

Dýpkaðu tengslin við forna jurtasiði og andlega visku náttúrunnar.

Lærðu að nota jurtir í hugleiðslu og heilandi athafnir.

SKOÐA NÁMSKEIÐ

Forpanta bókina

MATUR SEM MEÐAL

Forpanta bókina
Food as Medicine bókarkápa

Ég held að „matur sé meðal“ og trúi staðfastlega að það sé hin fullkomna leið til að ná hámarks heilsu. Í heimi fullum af unnum mat og óhollum matarvenjum gleymum við oft hinum ótrúlega lækningamátt sem leynist í ríkulegu framboði náttúrunnar. Með því að tileinka okkur þessa hugmyndafræði getum við enduruppgötvað gamlar aðferðir við matargerð sem leggja áherslu á fersk, heil innihaldsefni fullum af næringarefnum og lífsorku.

Ímyndaðu þér ilmandi jurtir sem dansa í sjóðandi pottum, liflegar grænmetistegundir sem snarka á grillum og safaríka ávexti sem breytast í litríkann elixir. Þessi ástríðufulla nálgun á næringu nærir ekki aðeins líkama okkar, heldur einnig sálina þegar við endurheimtum tengslin við fornar hefðir sem hafa gengið í erfðir milli kynslóða…

Maria Hrefna Hjálmarsdóttir Ringdal

Herbalist | Grasakona | Grasalæknir

JURTALYF, NÁTTÚRULEGAR SNYRTIVÖRUR OG FRÆ

VALDAR VÖRUR

Komdu og skoðaðu úrvalið af fræjum og náttúrulegum, handgerðum vörum í versluninni okkar.

NÁTTÚRULEGAR SNYRTIVÖRUR

VALDIR FLOKKAR

Skoðaðu snyrtivöruflokkana okkar og uppgötvaðu náttúrulegar, hreinar húðvörur og næringu fyrir líkama og sál.

TENGSTU KRAFTINUM INNRA MEÐ ÞÉR – LEIÐIN TIL HEILSU BYRJAR Í ÞÖRMUNUM

TÍMARIT GRASAKONUNNAR

Skoðaðu rafrænt tímarit Grasakonunnar og tengstu náttúrunni á ný – í gegnum fræðslu, innblástur og plöntuvisku.

NÁTTÚRAN HEFUR ALLTAF SVARIÐ

NÁÐU JAFNVÆGI MEÐ NÁTTÚRUNNI

Newsletter registration form

Verður notað í samræmi við  Persónuverndarstefnu