Þarf ég að hafa reynslu af jurtalækningum til að geta tekið þátt?

Nei, engin fyrri reynsla er nauðsynleg. Námskeiðið er hannað fyrir öll námstig og býður upp á fjölda aðferða til að henta mismunandi námsstílum.

Hef ég aðgang að efni námskeiðsins eftir að náminu lýkur?

Já, allar upptökur, efni og annað efni er aðgengilegt svo lengi sem Grasalækna skólinn starfar. Upptökur af zoom fundum verða settir inn, innan 24 klukkustunda frá loknum fundi.

Fæ ég aðgang að námsefninu strax eftir skráningu?

Þú munt hafa aðgang að efni 2ja fyrstu og minnstu hluta námskeiðsins um leið og þú skráir þig. Þeir hlutar innihalda kynningu og einnig yfirlit yfir bækur, plöntur og verkfæri sem eru áhugaverð fyrir ykkur sem stundið námið en þó ekki nauðsynleg til að geta stundað námið. Fyrir ykkur sem eruð sérlega áhugasöm getur verið spennandi að útvega sér eitthvað af þessu áður en námið byrjar en það fer allt eftir áhuga og hverjum og einum sem stundar námið.

Getur stéttarfélag mitt styrkt þetta nám?

Já, margir nemendur hafa fengið styrk frá stéttarfélagi eða atvinnurekanda. Þú þarft sjálf(ur) að hafa samband við þitt stéttarfélag til að fínna út hvort þú getir fengið styrk fyrir náminu.

Er heimavinna í náminu?

Já, í formi sköpunarverkefna sem eru hagnýt og byggð á jurtum og úrvinnslu.

Svara kennararnir spurningum?

Já, spurningum er svarað í samfélaginu, online í náminu og í beinum fundum reglulega.

Fæ ég stuðning frá kennurum?

Já, þú getur leitað til leiðbeinenda í gegnum samfélagskerfið, námskerfið og lifandi fundi. Námið inniheldur vikulega fundi á internetinu (svo framarlega að ekki sé annað tiltekið) með vikulegum (sept-maí, með einstaka fríi nokkrar vikur) tækifærum til að spyrja spurninga og fá persónulegar leiðbeiningar.

Get ég tengst öðrum nemendum?

Já, það er samfélag fyrir nemendur þar sem samskipti, spjall og tengsl eiga sér stað.

Mun þessi vottun hjálpa mér að fá vinnu?

Við getum að sjálfsögðu ekki ábyrgst að þú fáir atvinnu, en eftir að þú færð vottun í grasalækningum, verður þú betur undirbúin(n) til að miðla af þekkingu þinni, hjálpa viðskiptavinum, kenna, selja, markaðssetja og vinna með öðrum, sem mun geta skapað þér fjölda tækifæra á þessu sviði.

Hvernig fæ ég aðgang að námskeiðum og tímum?

Fundir fara fram á Zoom og allt efni er vistað á nemendavefnum með vikulegum uppfærslum.

Er námið á netinu, staðnám eða blandað?

Námið er alfarið á netinu með vikulegum Zoom fundum, upptökum og samfélagsaðgangi.

Hve mikinn tíma þarf ég að nota í námið?

Um 17 klst. á viku, þar af 90 mín. myndbönd og 9 klukkustunda námsefni, lestur, verkefni og lokaverkefni. Sjálft námið stendur yfir í samtals 2 ár með hléum um sumarið, þótt það sé ætlast til þess að nemendur safni plöntum og vinni að hluta til með lokaverkefni yfir sumartímann.

Fyrir hverja er þetta nám?

Fyrir alla sem vilja læra um heilun plantna, hvort sem er faglega, persónulega fyrir sína eigin heilsu eða sem áhugamál.

Hvað felst í vottuninni?

Þetta er vottun um að hafa lokið námi grasalæknir við skóla Grasakonunnar. Til þess að fá vottun verður þú að klára allar kennsluupptökur, ná að minnsta kosti 70% í öllum prófum, klára 70% af öllum heima sköpunarverkefnum og skila viðurkenndu lokaverkefni..

Má ég kalla mig grasalækni eftir útskrift?

Já, að menntun lokinni getur þú kallað sjálfa(n) þig grasalækni. Athugaðu hins vegar að nafnið grasalæknir er ekki verndað starfsheiti á Íslandi. Hins vegar ber þér að láta alla þína viðskiptavini vera klárlega upplýst um það að þú hafir ekki formlega menntun sem læknir, heldur er þetta um náttúrulækningar að ræða. Nafnið grasalæknir er ekki verndað starfsheiti og ef svo skyldi ske í framtíðinni, þá getur verið að þú þurfir að breyta um starfsheiti því þetta nám gefur þér ekki rétt á vernduðu starfsheiti, en í nágrannalöndum Íslands þá er starfsheitið Herbalist eða jurtafræðingur (fytoterapeut) sem er almennt viðurkennt og notað en að engu síður er það heldur ekki verndað starfsheiti. Orðið grasalæknir er mikið notað í gegnum árin á Íslandi og þeir sem sinna því starfi hafa bæði haft lengra nám að baki sér með B.Sc. gráðu og einnig þeir sem hafa lært mann frá manni eins og hefur gengið niður í ætt Þórunnar sem áður var kölluð grasakona. 

Get ég orðið aðili að fagfélagi?

Í dag finnst ekki félag íslenskra grasalækna. En námið er mjög ítarlegt og lengdin á því þannig gerð að ef þú værir til dæmis í Noregi, ættir þú að geta skráð þig hjá félögum sem eingöngu samþykkja þá sem hafa stundað vissan fjölda af tímum í svona námi og tímafjöldi í þessu námi uppfyllir skilyrði fjölda tíma. Þarlendis myndir þú kalla þig Herbalist eða Fytoterapeut. Sem hluti af þannig félagsskap þá er til dæmis hægt að ábyrgðartryggingar á sérstaklega góðum kjörum. 

Verð ég að mæta daglega?

Nei. Við hittumst einu sinni í viku í Zoom tíma. Annað er sveigjanlegt sjálfsnám.

Er þetta B.Sc. gráða?

Nei, þetta er ekki B.Sc. gráða, enda er þess ekki krafist að þú sért með stúdentspróf.

Þarf ég að greiða eitthvað annað en skólagjöld?

Nei, nema ef þú vilt kaupa efni til jurtaverkefna. Það er valkvætt og er yfirleitt hægt að leysa á einfaldan hátt.

Hvaða skilyrði eru gerð til að ljúka náminu?

Horfa á 100% af upptökum af öllum námskeiðinu
Fá að minnsta kosti 70% í einkunn í öllum prófum (þau má endutaka eins oft og þú vilt)
Skila að minnsta kosti 70% af öllum heimanámsverkefnum/sköpunarverkefnum (sem flestir hafa mikla ánægju af)
Klára lokaverkefni og skila því til kennara þíns fyrir skilafrest
Nemendur hafa 24 mánuði til að ljúka námsskránni og lokaverkefninu til að verða vottaðir (það er hægt að semja um lengri tíma sé þess þörf, þó aldrei lengur en 3 ár samtals)